17.12.1976
Neðri deild: 28. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1417 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)

126. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) ; Forseti. Þetta frv. felur í sér framlengingu á árinu 1977 á verðjöfnunargjaldi af raforku sem rennur til Rafmagnsveitna ríkisins til að standa undir rekstri þess fyrirtækis. Í fjárlagafrv. er reiknað með þessum tekjum.

Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. iðnn.