21.12.1976
Neðri deild: 38. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1574 í B-deild Alþingistíðinda. (1233)
66. mál, vegalög
Karvel Pálmason:
Virðulegi forseti. Það er aðeins út af ummælum hæstv. samgrh. Hann sagði hér áðan eitthvað á þá leið, að gildandi vegalög hefðu bannað okkur að setja meira fé í vegi úti í dreifbýlinu. (SvH: Þetta er misskilningur þinn.) Ja, ætli hæstv. samgrh. geti ekki svarað fyrir sig. Hafi ég misskilið þetta, þá verður það væntanlega leiðrétt. Ég veit ekki til þess að það sé neitt í gildandi vegalögum sem hefur sagt að t. d. á árinu 1976 ættu 1100 millj. að fara í hraðbrautir, nálægt því helmingurinn af því sem fer í vegaframkvæmdir á öllu landinu. Hvar stendur það í lögunum? Þetta er ákvörðunarvald ráðh., þetta er hans stefna, en ekki laganna. Og það er engin breyting sem á að verða með þessu frv. að því er þetta varðar. Það verður eftir sem áður ráðh. og vegamálastjóri sem segja til um það hver skipting verður milli stofnbrauta annars vegar og þjóðbrauta hins vegar. Það er því mesti misskilningur hjá hæstv. samgrh. að lögin hafi bannað að gera meira í vegakerfinu úti í dreifbýlinu heldur en raun ber vitni. (Gripið fram í: Hann sagði það ekki.) Enn kemur einn í vitnastúkuna fyrir hæstv. ráðh., þeir treysta honum greinilega ekki til þess að svara sjálfum. Ég bið þangað til hann kemur sjálfur og lýsir því yfir að ég hafi misskilið þetta. (Gripið fram í.) Nei, það fór eins og mig grunaði, að það kom í raun og veru engin yfirlýsing. Ef menn vilja telja þá yfirlýsingu, sem beðið var eftir, hafa komið af vörum hæstv. samgrh., þá var hún vægast sagt loðin, sú yfirlýsing, þar sem hann talaði um stefnumörkun í sambandi við vegaframkvæmdir í náinni framtíð. (Gripið fram í.) Ég held nú að það ætti að veita hv. þm. Sverri Hermannssyni orðið hér utan dagskrár, þannig að hann geti talað nóg og staðið við bakið á hæstv. ráðh.
Ég ætla ekki að víkja að því sem hæstv. samgrh. talaði um síðast í sinni ræðu. Það má gerast þá af öðrum aðilum en mér að tala um það mál. En ég vil ítreka það sem ég sagði hér í kvöld, að mér virðist allt benda til að framkvæmdin á því frv., sem hér liggur fyrir, muni reynast, verði það að lögum, sú hin sama og við höfum verið að gagnrýna að því er varðar stefnuna í vegamálum, þ. e. a. s. fyrst og fremst lögð áhersla á vegi með bundnu slitlagi, og við vitum hvar þeir verða.
En að gefnu tilefni vil ég óska eftir því við hæstv. samgrh., hann sjálfan og persónulega, enga utanaðkomandi stuðningsmenn úr liði hæstv. ríkisstj., að hann geri grein fyrir því hér eða leiðrétti þennan misskilning minn, hafi ég misskilið. (Gripið fram í.) Ég heyri að hæstv. menntmrh. lætur sér meira annt um vegamálin en þá málaflokka sem heyra beint undir hans rn. (Gripið fram í.) Það er kannske ekki ástæða til þess að ræða þetta öllu frekar fyrr en hæstv. samgrh. hefur stigið í stólinn aftur. Ég segi eins og hv. þm. Ólafur G. Einarsson, ég ætla ekki að segja meira að sinni.