21.12.1976
Efri deild: 36. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1582 í B-deild Alþingistíðinda. (1255)

138. mál, vörugjald

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Ekki skal ég nú tefja tímann lengi, en ég get ekki látið hjá líða að lýsa ánægju minni yfir að þetta frv. skuli vera á greiðri leið í gegnum þingið, ekki síst vegna þess að mér er ljóst að ýmsir í stjórnarráðinu eru ekki sérstaklega hrifnir af hinum eyrnamörkuðu tekjustofnum. En ég er sannfærður um að þetta á eftir að verða þessu merka málefni til mikils góðs og tryggja eðlilegan framgang framfara á þessu sviði.