21.12.1976
Efri deild: 37. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (1263)

Þingfrestun

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Þar sem þetta er síðasti fundur fyrir þingfrestun vil ég leyfa mér að þakka hv. dm. fyrir gott og ánægjulegt samstarf. Ég óska hv. dm. gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Sömu óskir hef ég fram að færa til handa skrifstofustjóra Alþingis og öðru starfsfólki Alþingis. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu. Ég vænti þess að við hittumst hér allir heilir á næsta ári.