21.12.1976
Sameinað þing: 38. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1588 í B-deild Alþingistíðinda. (1278)

Þingfrestun

Lúðvík Jósepsson:

Ég vil fyrir hönd okkar alþm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég vil jafnframt þakka honum fyrir gott samstarf við okkur þm. og fyrir góða og réttláta fundarstjórn. Ég óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og farsæls komandi árs. Ég bið hv. þm. að taka undir þessar óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]