24.01.1977
Sameinað þing: 39. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1589 í B-deild Alþingistíðinda. (1281)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Hinn 10. jan. 1977 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkv. tillögu forsrh., að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 24. jan. 1977, kl. 14.

Gert í Reykjavík, 10. jan. 1977.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.