24.01.1977
Sameinað þing: 39. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1589 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)
Framhaldsfundir eftir þingfrestun
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar alþm. og starfsfólks Alþ. Jafnframt óska ég hæstv. ríkisstj. og hv. alþm. og starfsfólki Alþ. gleðilegs árs um leið og ég þakka samstarfið á liðnu ári.
Eins og hæstv. forsrh. hefur lýst, þá hefjast þingfundir.