21.10.1976
Sameinað þing: 7. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (131)

8. mál, sundlaug við Grensásdeild Borgarspítalans

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Þar eð hæstv. heilbrrh. hefur lýst yfir fylgi sínu við þessa till., sem ég tel sérstaka ástæðu til þess að þakka, og þar eð þm. úr þrem flokkum þingsins hafa látið í ljós stuðning við till., þá vil ég ekki láta hjá líða að taka fram að við þm. Alþfl. munum að sjálfsögðu styðja þessa till. sem fjallar um mikið nauðsynjamál sem nauðsynlegt er að nái sem fyrst fram að ganga. Í því sambandi vil ég sérstaklega taka undir þau orð hv. síðasta ræðumanns, að nauðsynlegt er og sómi þingsins liggur við að málið fái sem hraðasta og skjótasta afgreiðslu hér á hinu háa Alþingi.