31.01.1977
Efri deild: 39. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1728 í B-deild Alþingistíðinda. (1373)
144. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, miðar að því að lögfesta grundvallarreglur við úthlutun olíustyrksins. Í fjárl. fyrir árið 1977 er gert ráð fyrir að verja allt að 698 millj. kr. í styrk til einstaklinga vegna upphitunar íbúðarhúsnæðis með olíu og til rafveitna vegna framleiðslu rafmagns með olíu til upphitunar íbúða. Sú breyting varð að þessi liður er í fyrsta skipti tekinn í fjárlög nú og tekjuöflun í þessu skyni er samkv. lögum um söluskatt, en áður giltu sérstök lög um tekjuöflunina og úthlutun styrksins. Framlag til Orkusjóðs er nú sérstakur líður í fjárlögum.
Eldri lög um þetta efni giltu frá 1. mars 1976 til 28. febr. 1977, en voru afnumin frá 1. jan. s. l. með lögum um söluskatt. Gert er ráð fyrir því í frv. að desembergreiðsla samkv. þeim lögum verði greidd með greiðslu fyrir jan. til mars 1977 og tekjuöflun til hennar verði samkv. eldri lögum. Ákvæði frv. eru ekki tímabundin, þannig að þau gilda áfram á meðan fé er veitt á fjárl. í þessu skyni. Rétt þykir að viðskrn. ákveði upphæð styrksins miðað við fjárveitingu hverju sinni.
Eins og hv. þm. er kunnugt eru hitaveituframkvæmdir á döfinni á nokkrum stöðum, svo sem á Reykjavíkursvæðinu, Suðurnesjum, Siglufirði og víðar. Munu þær smám saman draga úr fjölda þeirra sem olíustyrks njóta, þannig að meira ætti að öðru jöfnu að geta komið í hlut hvers sem hann fær. En fjárhæð sú, sem á fjárl. er ætluð í þessu skyni, er við það miðuð að styrkfjárhæð á þessu ári til einstaklinga geti verið sú hin sama og á s. l. ári.
Um þetta mál var almennt rætt í sambandi við söluskattsfrv., þegar það var til umr. hér á sínum tíma, og ég sé ekki ástæðu til að fara út í umr. um það. Það má segja að þetta sé aðeins afleiðing af því sem þá var gert, en þykir eðlilegra og reyndar nauðsynlegt að lögfesta úthlutina á því fé sem veitt er í þessu skyni í fjárlögum.
Ég leyfi mér að leggja til, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og til hv. fjh.- og viðskn.