26.10.1976
Sameinað þing: 9. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (152)
241. mál, framkvæmd skattalaga
Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svörin, þó að ég verði nú að hryggja hann með því að ég er ósköp lítið nær um það hvað í raun og veru er til og til ekki og hvernig vinnubrögðum er háttað milli hinna ýmsu skattstofa í landinu.
Fyrsta orðið í svari hæstv. ráðh. er já við þeirri spurningu, hvort í gildi séu samræmdar reglur milli skattumdæma um framkvæmd skattalaga. Ég a.m.k., þrátt fyrir þessa umsögn ríkisskattstjóra, dreg það mjög í efa, vægast sagt, að slíkar reglur séu í gildi, a.m.k. um það tiltekna dæmi sem ég geri hér að umræðuefni í fsp., þ.e.a.s. varðandi viðhaldskostnað íbúðarhúsnæðis. Ég dreg það mjög í efa og vil raunar fremur halda að engar slíkar reglur séu til samræmdar af hálfu ríkisskattstjóra hjá hinum ýmsu skattumdæmum í landinu. Ég held að miklu frekar sé hægt að segja, að sumar skattstofanna í landinu hafi sjálfar sett sér þessar reglur, einhverjar a.m.k., þannig að ekki sé um að ræða neinar samræmdar reglur frá ríkisskattstjóra um framkvæmd þessa frádráttarliðar, sem er þó mjög mikilvægur hjá mörgum einstaklingum í landinu. Og svo hygg ég að muni vera með fleiri frádráttarliði sem engar samræmdar reglur eru gildandi um.
Varðandi 2. liðinn, þar sem spurt er um, ef þessar reglur eru til, hvort fyrir liggi þá upplýsingar um framkvæmd slíkra reglna, er ekkert svar við því beint í svari ríkisskattstjóra til hæstv. fjmrh. Það virðast engar upplýsingar liggja fyrir um það eða vitað um það af hálfu ríkisskattayfirvalda, hvort eða með hvaða hætti framkvæmd þessara mála er hjá hinum einstöku skattstjórum eða skattstofum. heim virðist hins vegar látið það í hendur að framkvæma að eigin geðþótta þessar frádráttarreglur, eins og þeim sjálfum sýnist að það eigi að vera. Þetta er að mínu viti mjög forkastanlegt, að slíkt skuli gerast í sambandi við framkvæmd skattalaga, að skattþegnar skuli ekki vera jafnvel settir eða illa settir, eftir því hvernig á það er lítið, burt séð frá því í hvaða skattumdæmi þeir búa. En það held ég að sé ótvírætt hagt að sýna fram á, að það er breytilegt varðandi framkvæmd skattalaga á undanförnum a.m.k. tveim árum, þannig að hér er ekki um að ræða, að því er verður séð á svari ríkisskattstjóra og fjmrh., að neitt sé fylgst með því hvernig framkvæmd þessara mála er háttað í hinum ýmsu umdæmum. Ég tel að það sé ljóst af þessu svari.
Í þriðja lagi varðandi það, hvort slíkar reglur væru þá heimilar almenningi til eftirbreytni og upplýsinga, þá er að því vikið í svari ríkisskattstjóra að slíkt hafi verið sent í nokkur hundruð eintökum, leiðbeiningar ríkisskattstjóra til framteljenda. Þar er, ef ég man rétt, ekki mikið um það að finna hvað hinn ákveðni verkþáttur í framkvæmd á viðhaldi íbúðarhúsnæðis fæst að miklum hluta frádreginn, þannig að hér er ekki um að ræða þær reglur sem ég er um að tala, að framteljandi viti það alveg ákveðið hversu mikinn hluta af upphæð þeirra framkvæmda, sem hann er að láta endurbæta sína eign, hann fær til frádráttar í skatti. Og það er þetta, sem ég held að þurfi að koma í lag, að það sé fyrir tilstuðlan ríkisskattstjóra samræmd framkvæmd á þessum málum, þannig að menn búi almennt við sama, burt séð frá því hvar þeir eru búsettir. Og ég vil að lokum beina þeirri eindregnu ósk til hæstv. fjmrh., að hann geri gangskör að því sem æðsti yfirmaður þessara mála í landinu að slíkar reglur verði settar og að þeim verði framfylgt á sama hátt, burt séð frá því hvar menn búa hér á landi.