15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (1528)

252. mál, samanburður á vöruverði

Forseti (Ásgeir Bjarnason) :

Út af því, sem hv. 2. landsk. þm. gat um áðan í sambandi við fsp., hversu seint þeim væri svarað, þá er það alveg rétt. En hvort tveggja er ekki hægt að gera á örstuttum fundartíma, að svara þeim mörgu fsp. utan dagskrár, sem ekki síður þm. í stjórnarandstöðu en aðrir hafa lagt áherslu á að yrði svarað, og taka líka fyrir fsp. sem eru á dagskrá. Því finnst mér að hv. 2. landsk. þm. eigi að ræða þessi mál innan síns flokks til þess að fá bætt þetta fyrirkomulag á fundum Alþingis.