23.02.1977
Neðri deild: 52. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2253 í B-deild Alþingistíðinda. (1663)

145. mál, framlag Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir, hefur verið til meðferðar í hv. Ed. Alþ. Hefur það verið samþ. þar óbreytt og samhljóða.

Efni þessa frv. er í stuttu máli það, að í því felst heimild fyrir ríkisstj. til þess að auka kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og framlag Íslands til Alþjóðabankans. Er um að ræða almennar hækkanir aðildarlandanna í samræmi við nýjar ákvarðanir um hækkun stofnfjár þessara stofnana. Hækkun stofnfjár hefur farið fram áður, síðast samkv. l. nr. 28 frá 28. apríl 1970. Ísland hefur verið aðill að sjóðnum og bankanum frá stofnun þeirra 1945 og hefur notið ýmiss konar hagræðis af aðildinni. Víðtæk endurskoðun á stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur átt sér stað undanfarið og mun sérstakt frv. um staðfestingu Íslands á þeim breytingum verða lagt fyrir Alþ. síðar.

Ég sé ekki, herra forseti, ástæðu til þess að hafa þessi orð fleiri um þetta frv., en vísa til frv. og aths. við það og leyfi mér að gera það að till. minni að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.