26.10.1976
Sameinað þing: 10. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í B-deild Alþingistíðinda. (180)

28. mál, samkomulag um veiðar breskra togara

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Út frá því sem hv. 2. þm. Austurl. hefur farið fram á, að fresta fundi nú og hefja umr. aftur síðar um þetta mál, get ég vel fallist á það. En á hitt vil ég minna, að s.l. fimmtudag var þetta mái ekki tekið' fyrir vegna óska hv. 2. þm. Austurl., og ég vil taka það fram strax, að þar sem umr. heldur ekki áfram nú, þá mun hún fara fram næsta föstudag, það verður fjárlagaumr. á fimmtudag, og það sjá allir hv. þm. að það er ekki hægt að draga á langinn að ræða þetta mál. Því fer umr. fram næsta föstudag og með þeim forsendum fellst ég á það að umr. verði frestað að þessu sinni.