08.03.1977
Sameinað þing: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2463 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)

167. mál, flugsamgöngur við Vestfirði

Flm. (Karvel Pálmason) :

Herra forseti. Hér er um að ræða mál sem var hér nokkuð mikið til umr. fyrir nokkru. Þar sem ég tel að hér sé mál með þeim hætti, að það væri mjög eðlilegt að hæstv. samgrh. gæti verið við umr. um það, þá vildi ég mjög gjarnan óska eftir því við hæstv. forseta að hann frestaði málinu þangað til hæstv. samgrh. gæti verið við umr., því að mér sýnist hann ekki vera viðstaddur.