30.03.1977
Neðri deild: 64. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3045 í B-deild Alþingistíðinda. (2223)

209. mál, skipulagslög

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :

Herra forseti. Þetta frv. um breyt. á skipulagslögum stendur í beinu sambandi við frv. til byggingarlaga sem ég gerði hér grein fyrir næst á undan. Aðdragandi er sá, að í maímánuði 1973 skipaði þáv. félmrh. n. til að endurskoða lög um byggingarmálefni og semja frv. til byggingarlaga. Sú n. skilaði því frv. til byggingarlaga sem lagt var fyrir síðasta þing og hefur nú verið endurskoðað og lagt fram að nýju nokkuð breytt. Í sambandi við það þarf að breyta nokkuð tveimur greinum skipulagslaga, og um það fjallar þetta frv. sem er einnig samið af hinni sömu nefnd.

Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og félmn.