13.04.1977
Sameinað þing: 74. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3077 í B-deild Alþingistíðinda. (2245)
148. mál, bygging nýs þinghúss
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Ég verð að biðjast afsökunar á því, að ég missti af fyrri hluta af síðustu ræðu hv. frsm., en seinni hlutann tók ég til mín og vil svara í fáum orðum.
Hv. frsm. talaði um starfsaðstöðu þm. og taldi að þeir, sem teldu hana ekki viðunandi, vildu „svítur“, heyrði ég hann segja, — það munu víst vera nokkur herbergi með móttökuherbergi o. fl. þess háttar. Ég hef ekki heyrt nokkurn einasta mann minnast á slíkt, og það er ærið mikið bil þar á milli að hafa „svítu“ einkaritara og móttökudömu kannske líka og ég veit ekki hvað og hvað eða þá aðstöðu sem þm. búa við núna. Ég veit ekki hvar hann hefur heyrt slíkt. Þetta er meiri útúrsnúningur en ég hef heyrt frá hv. þm. fyrr. (Gripið fram í.) Það er kannske hans eigin draumur, ég vil bara andmæla þessu.
Ég held að mörg mál, sem hér eru borin fram, bæði mál flutt af honum og mér o. fl., beri því miður vott um það að við höfum ekki haft aðstöðu til að láta rannsaka þau eins og við vildum, fara í gegnum eldri mál og aðstoða okkur við þann undirbúning. Ég held satt að segja að virðingu Alþ. hafi hrakað af þessari ástæðu, að við höfum ekki haft tækifæri til að vinna mörg mál, sem hér eru flutt, eins og við vildum og þurfum að treysta í vaxandi mæli á að ríkisstj. láti vinna mál og leggja fram. Við höfum ekki aðstöðu til þess að vinna sem sjálfstæðir einstaklingar, og það harma ég. Ég veit að þeir, sem líta í eigin barm og skoða undirbúning mála sem þeir hafa flutt, finna fyrir þessu. Ég segi fyrir mitt leyti að ég teldi það ekki ofrausn þó hver þingflokkur hefði t. d. eina eða tvær vélritunarstúlkur, eitthvað bess háttar, og það er langt á milli þess og einkaritara fyrir hvern þm., eða þó að þingflokkur hefði t. d. skrifstofuaðstöðu saman, þó að þm. væru tveir í herbergi, það skiptir ekki öllu máli, og fundaraðstöðu og þess háttar. Ég tel, að þessi atriði þurfi einnig að skoða, og vil andmæla því sem ég heyrði frá hv. frsm. og ég verð að segja eins og er, að ég er ekki vanur að heyra frá þessum hv. þm.