01.11.1976
Efri deild: 7. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (238)

51. mál, skotvopn

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þetta frv. var lagt fram á síðasta Alþ., en varð ekki útrætt. En allshn. Ed. hafði fjallað um það og lagt fram brtt. sem samþ. voru við 2. umr. í deildinni. Þær breyt. hafa nú verið felldar inn í frv. Þá var og við 3. umr. í deildinni samþ. brtt. við 7. gr. Hefur gr. nú verið endurskrifuð til að taka upp meginefni þeirrar breyt. sem beinist að því að banna innflutning sérstaklega hættulegra tegunda varnings þess sem frv. fjallar um, einkum þó sjálfvirkra skotvopna. Þá hefur einnig verið bætt inn í 35. gr. ákvæði um upptöku tækja og efna brotamanns annarra en þeirra sem brot er framið með. Að öðru leyti er þetta frv. óbreytt frá því í fyrra. Það frv. var þá afgr. í þessari hv. d. og þess vegna ætti í sjálfu sér ekki að þurfa langa framsögu um það nú. Ég mun þess vegna ekki ræða neitt þá þörf sem er á því að setja ný lög í stað þeirra gömlu og ófullkomnu laga sem eru um þetta efni, læt nægja að vísa þar um til þess sem ég sagði á þingi í fyrra svo og til athugasemdanna.

Eins og ég gerði raunar í fyrra, vil ég víkja að nokkrum helstu nýmælum sem er að finna í þessu frv. Frv. skiptist í sjö kafla.

I. kaflinn fjallar um gildissvið frv. Þar er merking hugtakanna skotvopn, skotfæri, sprengiefni og skoteldar afmörkuð. Í 3. gr. er ráðh. heimilað að setja reglur um önnur efni en þau sem frv. tekur til samkv. eldri skilgreiningu ef þau hafa svipaða eiginleika og verkanir, svo sem ýmis önnur vopn en skotvopn og ýmis efni sem teljast ekki vera sprengiefni eða skoteldar, en hafa svipaða eiginleika. Aðstæður geta komið upp sem gera nauðsynlegt að setja reglur um þessa hluti, og því er talið rétt að ráðh. hafi heimild sem þessa.

Í Il. kafla frv. er fjallað um innflutning, útflutning, framleiðslu og verslun með nefndar vörur. Í gildandi lögum eru mjög ófullkomnar reglur um framleiðslu á þessum vörutegundum, og það er út af fyrir sig eðlilegt af því að lengst af hefur ekki verið nein framleiðsla í landinu á þessum efnum. Nú er hins vegar svo, að hér hafa verið starfandi a.m.k. tvær flugeldaverksmiðjur og er því þörf á að settar séu reglur um þá framleiðslu.

Frv. gerir ráð fyrir þeirri breyt. frá núgildandi framkvæmd varðandi innflutning til landsins að leita þurfi leyfis fyrir hverri og einni vörusendingu. Þetta er mikilvægt til þess að tryggja að ekki séu aðrar vörur fluttar inn en þær sem leyfðar eru til sölu innanlands, og einnig veitir það stjórnvöldum tækifæri til að fylgjast á hverjum tíma með innflutningi. Er gert ráð fyrir því að meira eftirlit verði haft með verslunum og lögð ríkari skylda á verslunareigendur en nú er, að þeir afhendi ekki öðrum vörur heldur en þeim sem sanni að þeir megi kaupa þær.

Ill. kafli frv. fjallar eingöngu um skotvopn og skotfæri. Þar er kveðið á um það, hverjir geti fengið leyfi til þess að kaupa skotvopn og skotfæri. Nokkru ítarlegri ákvæði eru um þetta í frv. en eru í gildandi lögum. Samkv. þeim lögum, er nú gilda, eru að vísu allströng ákvæði um það hverjir geta fengið leyfi til þess að eiga skotvopn, en e.t.v. hefur ekki tekist að fylgja þeim ákvæðum eftir í framkvæmd eins og skyldi. Í núgildandi lögum er sagt að það skuli vera aðalreglan, að þeim einum sé veitt heimild til þess að hafa í vörslum sínum skotvopn sem sýni skilríki fyrir því að þeim sé það gagnlegt eða nauðsynlegt vegna atvinnu sinnar. Svipað ákvæði er í frv., en auk þess eru tilgreind ákveðin skilyrði sem leyfishafi þurfi að fullnægja, svo sem ákveðinn lágmarksaldur, 20 ár. Gerðar eru kröfur um að viðkomandi hafi þekkingu á skotvopninu og kunni skil á hættueiginleikum þess, og almennt er gert að skilyrði að menn hafi ekki gerst brotlegir við almenn hegningarlög, áfengislög eða lög er varða meðferð skotvopna, nema brot sé smávægilegt. Enn fremur eru gerðar vissar heilbrigðiskröfur í 15. gr. Þar segir að umsækjandi skuli vera andlega heilbrigður. E.t.v. hefði mátt gera þarna líka kröfu til þess að maður væri svo líkamlega heilbrigður, t.d. hvað sjón snertir, að honum væri treystandi til þess að fara með skotvopn. En ég býst við að það megi koma því ákvæði undir þar sem segir, að hann sé að öðru leyti hæfur til þess að fara með skotvopn, og koma því þá inn í reglugerð. En auðvitað væri ekkert athugavert við það þó að þetta væri gert ítarlegar til þess að taka af öll tvímæli í þessu efni. Það er og nýmæli í frv. að gert er ráð fyrir að skotvopnaleyfi sé ekki gefið út til lengri tíma í senn en 10 ára. Þetta ætti að auðvelda lögregluyfirvöldum að hafa eftirlit með skráningu skotvopna, og það auðveldar þeim að fylgjast með því að leyfishafar fullnægi nauðsynlegum skilyrðum á hverjum tíma.

Mörg önnur nýmæli eru í þessum kafla frv. sem miða að því að koma í veg fyrir misnotkun skotvopna. Öll þessi ákvæði setja ákveðnar hömlur við sölu skotvopna, án þess þó að koma í veg fyrir eðlilega og nauðsynlega notkun þeirra. Benda má á í þessu sambandi að víða um lönd hafa verið hert ákvæði um sölu og meðferð skotvopna, og stafar það að sjálfsögðu af þeim sívaxandi ofbeldishvötum og hryðjuverkum sem vart verður við.

Skotvopn eru auðvitað alltaf hættuleg tæki og þau má misnota. En þau eru eigi að síður nauðsynleg og verður þess vegna að reyna að haga reglum um þau þannig að reynt sé eftir því sem hægt er að koma í veg fyrir misnotkun í sambandi við þau, sem seint verður þó hægt algjörlega með lagaákvæðum.

IV. kafli frv. fjallar um sprengiefni, hverjir megi kaupa það, hverjir megi nota það, geymslu sprengiefnis og meðferð. til þessa hefur algjörlega skort reglur um þetta efni. Að vísu má segja að ófullkomnar reglur séu til um það, hvar og hvernig megi geyma sprengiefni, en mjög fábrotnar reglur eru í gildi um flutning á því og meðferð þess. Þar sem nú er orðið mikið um notkun slíkra efna er nauðsynlegt að sett séu ákvæði um það. En það er jafnframt gert ráð fyrir því að sett séu ítarlegri ákvæði í reglugerð, og er það talið æskilegra þar sem hér er um mjög tæknileg atriði að tefla.

Það má segja að sem betur fer hafi notkun skotelda ekki valdið verulegum vandræðum hér. En þó er það svo, að á hverju ári slasast menn eitthvað meira eða minna af völdum skotelda, og því er talið nauðsynlegt að settar séu um þetta fyllri reglur en nú gilda. Er gert ráð fyrir því sem meginreglu að ekki megi selja yngri mönnum en 16 ára skotelda. Á sama hátt og um sprengiefni er þörf á setningu reglugerðar um þetta efni.

Í VI. og VIl. kafla frv. er fjallað um heimild stjórnvalda til þess að afturkalla leyfi, um refsingar, eignarupptöku, stjórnvaldskæru o.fl. Refsímörk eru hækkuð talsvert frá því sem nú er. Samkv. gildandi lögum varðar brot sektum allt að 10 þús. kr. Samkv. frv. getur brot varðað allt að eins árs fangelsi, nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum. Í sumum nágrannalöndum eru refsimörkin hærri, svo sem í Danmörku og Svíþjóð, en þar er gert ráð fyrir að brot á samsvarandi lögum geti varðað allt að tveggja ára fangelsi. Í Noregi og Finnlandi eru hins vegar refsimörkin nokkru lægri. Er nú ætlast til þess að leyfissviptingum verði beitt í ríkari mæli en nú er gert. Eru allítarleg ákvæði um það í frv. hvernig fari um sölu á varningi sem leyfishafi skal skila þegar hann er sviptur leyfi, ef ekki eru jafnframt fyrir hendi skilyrði til eignarupptöku. Bæði hækkun refsinga og beiting ákvæða um sviptingu leyfa í ríkara mæli en nú er gert ættu að leiða til meiri aðgæslu hjá þeim sem fara með og nota þessa hluti.

Enda þótt frv. sé mun viðameira en gildandi lög, þá er, eins og þegar hefur verið tekið fram, þörf á setningu reglugerðar sem kveði nánar á um ýmis atriði, svo sem geymslu og flutning sprengiefna og um fleiri atriði.

Hér eru ákvæði um þau skotvopnaleyfi, sem gefin hafa verið út áður en lögin taka gildi, og um önnur leyfi, sem varða þessa hluti, og er gefinn frestur svo sem í frv. segir til þess að tryggja að þeir, sem hlut eiga að máli, leyfishafarnir, geti fullnægt settum skilyrðum og það er gefinn allrúmur frestur til endurnýjunarbeiðni.

Ég skal svo, herra forseti, ekki fara um þetta frv. fleiri orðum. Með tilliti til afgreiðslu hv. d. á þessu máli á s.l. þingi og ítarlegrar athugunar, sem þá fór fram hjá henni á þessu máli, vænti ég þess að það eigi nú greiðan gang í gegnum þessa hv. d. og gegnum Alþ. Það er áreiðanlega mikil þörf á því að setja reglur um þetta efni, og þó það sé svo, að lagasetning girði aldrei og geti aldrei girt fyrir allar þær hættur sem eru samfara þessum tækjum, þá er hv. Alþ. skylt að reyna að gera sitt til þess að draga sem mest úr þeirri hættu.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr, vísað til 2. umr. og hv. allshn.