20.04.1977
Efri deild: 59. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3407 í B-deild Alþingistíðinda. (2403)

227. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Á árinu 1975 og 1976 stóðu yfir miklar viðræður milli fjmrn. og samtaka starfsmanna ríkisins um skipan samningsréttarmála. Þeim viðræðum lauk gagnvart Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja með setningu laga nr. 29 1976 á s. l. vori. Samkvæmt heimild í hinum nýju lögum hefur BSRB nú sagt upp gildandi kjarasamningum miðað við 1. júí n. k. Jafnframt hefur BSRB verið veittur takmarkaður verkfallsréttur eins og þar segir.

Bandalag háskólamanna nýtur enn samnings­réttar samkv. l. nr. 46 1973. Eigi hefur tekist að sætta svo sjónarmið aðila kjarasamninga milli ríkisins og starfsmanna þess að unnt væri að lögfesta eitt kjarasamningakerfi fyrir starfsmenn ríkisins og virðist nokkuð í land að slíkt verði raunveruleiki.

Bandalag háskólamanna og fjmrn. eru þó sammála um að nauðsynlegt sé að gera nú nokkrar breyt. á 1. nr. 46 1973, þannig að Bandalag há­skólamanna fái heimild til að segja upp gild­andi kjarasamningum fyrr en ákvæði þeirra segja til um.

Í 7. gr. gildandi laga um samninga við Banda­lag háskólamanna segir, að aðalkjarasamning skuli gera til eigi skemmri tíma en tveggja ára og koma til framkvæmda 1. júlí næst á eftir gerð hans.

Frv. það, sem nú er flutt, gerir ráð fyrir því, að upphaf gildistíma kjarasamnings verði ákveð­ið í kjarasamningnum sjálfum, en gildistími hans verði áfram tvö ár. Önnur atriði frv. fjalla aðal­lega um breyt. á frestum til uppsagna og með­ferðar hjá sáttasemjara. Gildandi samningur við Bandalag háskólamanna á að öllu óbreyttu að standa til 30. júlí 1978. Í ákvæðum til bráða­birgða í frv. þessu er lagt til að segja megi upp þeim samningi með þriggja mánaða fyrirvara miðað við 1. nóv. 1977.

Ástæða þess að tímabil núgildandi samninga er þannig stytt nokkuð er sú að vænta má nýrra samninga við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja nú í sumar, en eðli málsins samkvæmt verða í mörgum atriðum að gilda svipaðar reglur í við­skiptum ríkisins við starfsmenn, óháð því hvaða samtökum þeir tilheyra.

Ég leyfi mér, herra forseti með skírskotun til þess sem ég nú hef sagt um það frv. sem hér er til umr., að leggja til, að þessu máli verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn., og vænti þess, þar sem hér er um sam­komulagsatriði að ræða milli fjmrn. og Bandalags háskólamanna, að frv. geti náð fram að ganga á þessu þingi.