27.04.1977
Efri deild: 65. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3782 í B-deild Alþingistíðinda. (2698)

230. mál, kjarasamningar starfsmanna banka

Jón Helgason:

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um kjarasamninga starfsmanna banka í eigu ríkisins og leggur einróma til að frv. sé samþykkt. Hæstv. viðskrh. gerði grein fyrir efni þessa frv. við 1. umr. og sé ég ekki ástæðu til þess að fara mörgum orð­um um það, en vil geta þess, að formaður fjh.- ­og viðskn. hafði samband við formann Sambands ísl. bankamanna og hann lagði mikla áherslu á að þetta frv. næði fram að ganga og yrði að lögum nú á þessu þingi.