30.04.1977
Efri deild: 80. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4026 í B-deild Alþingistíðinda. (3033)
Umræður utan dagskrár
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Út af ummælum hv. síðasta ræðumanns vil ég taka það fram, að ég heyrði ekki útvarp í gærkvöld og veit þess vegna ekki hverju var útvarpað úr þeim umr. sem hér fóru fram um frv. um bann gegn tóbaksauglýsingum. En eitthvað hefur það verið á þann hátt, að það kom skringilega fyrir eyru sumra, því að kunningjar mínir, fleiri en einn og fleiri en tveir, hringdu í mig og spurðu hvort ég væri orðinn einhver skemmtitrúður á vegum Alþingis.
Ég verð að segja það, að ég er það óvanur þingstörfum að mér er ekki kunnugt um þær föstu reglur sem gilda um birtingu úr umr., en get þó jafnframt gert þá játningu, að jafnorðhvötum manni og ég er mun ekki veita af að fá að lesa fyrst yfir handritið og nota það tækifæri sem þar gefst til þess að gera þær breytingar sem mér skilst að mönnum sé heimilt að gera á því máli sem flutt hefur verið, áður en farið er að birta úr ummælum manna, jafnvel þó þau séu tekin upp á segulbönd, og útvarpa þeim í alþjóðaráheyrn. Ég get því tekið undir þá ábendingu, sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, að mér mundi þykja öllu þægilegra að mega vera þess réttar aðnjótandi í framtíðinni, að ekki væri farið að beita slíkum aðferðum að senda beint út í fjölmiðla ummæli, sem maður hefur leyfi til þess að leiðrétta og lagfæra, áður en tækifæri hefur gefist til þess að lesa yfir hlutaðeigandi ræðuhandrit.