30.04.1977
Neðri deild: 82. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4040 í B-deild Alþingistíðinda. (3074)

169. mál, umferðarlög

Frsm. (Svava Jakobsdóttir):

Hæstv. forseti. Þetta mál hefur hlotið afgreiðslu í Ed. Samkv. þessu frv. er ökumönnum bifhjóla og farþegum skylt að nota hlífðarhjálma við akstur. Allshn. þessarar d. hefur fjallað um frv. og mælir ein­róma með samþykkt þess.