02.05.1977
Efri deild: 82. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4064 í B-deild Alþingistíðinda. (3101)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég gerði ráð fyrir að engir hv. dm. væru alls kostar ánægðir með þá ákvörðun sem ég tilkynnti áðan, og það er kannske vottur þess, eins og stundum er undir slíkum kringumstæðum, að það sé sann­gjörn ákvörðun. Sú ákvörðun hefur a. m. k. verið tekin og fundinum verður fram haldið.