08.11.1976
Efri deild: 9. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (316)
58. mál, innheimta gjalda með viðauka
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Á þskj. 60 er frv, til l. um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka, eins og þar segir, 140%. Þetta frv. er áður kunnugt, hefur verið flutt á nokkrum undanförnum þingum og ekki talin ástæða til að festa umræddan gjaldaviðauka, hins vegar leitað heimildar á hverju ári til að innheimta þessi ákveðnu gjöld með þessum gjaldaviðauka.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið, það er, eins og ég sagði áðan, áður kunnugt. Ég legg til að að lokinni 1. umr. verði því vísað til hv. fjh: og viðskn. og 2. umr.