02.05.1977
Neðri deild: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4147 í B-deild Alþingistíðinda. (3182)

201. mál, tónmenntafræðsla í grunnskóla

Frsm. (Sigurlaug Bjarnadóttir):

Hæstv. forseti. Menntmn. Nd. hefur fjallað um þetta mál og varð samstaða í n. að öðru leyti en því, að einn nm., Ellert B. Schram, undirritar nál. með fyrir­vara. Leitað var umsagnar hjá formanni Skólastjórafélags Íslands og formanni Tónmenntakennarafélags Íslands, og var umsögn þeirra beggja á þann veg að þeir mæltu með samþykkt frv.