02.05.1977
Neðri deild: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4147 í B-deild Alþingistíðinda. (3185)

213. mál, Skálholtsskóli

Frsm. (Ingvar Gíslason):

Virðulegi forseti. Menntmn. hefur fjallað um þetta frv. og leggur til að það verði samþykkt í því formi sem það var lagt fyrir þessa hv. d. og afgreitt frá Ed. Ég vil taka það fram, að Svava Jakobsdóttir, sem skrifar undir nál., gerir það með fyrirvara um viss atriði í frv.