03.05.1977
Sameinað þing: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4214 í B-deild Alþingistíðinda. (3272)

8. mál, sundlaug við Grensásdeild Borgarspítalans

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Fjvn. hefur rætt þáltill. um sundlaug við Grensásdeild Borgarspítalans. Till. varð ekki fullrædd áður en gengið var frá fjárl. ársins 1977, en í till. stendur raunar að verkefni það, sem hún fjallar um, verði tekið til greina á fjárl. fyrir árið 1977. Till. var ekki rædd fyrr en eftir að þessi fjárlög voru samþykkt. Þar sem svo varð þótti þó rétt að minna á það verkefni, sem till. fjallar um, og gera það með þeim hætti að vísa till. til ríkisstj., þannig að efni till. kæmi til álita í sambandi við undirbúning næstu fjárlaga. Það varð sem sagt niðurstaða fjvn. að leggja til að till. verði vísað til ríkisstj.