03.05.1977
Sameinað þing: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4214 í B-deild Alþingistíðinda. (3273)

8. mál, sundlaug við Grensásdeild Borgarspítalans

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Þar sem ég hygg að sé eini flm. þessarar till. sem hér er staddur nú vil ég geta þess fyrir a. m. k. mína hönd og hv. 1. flm., Magnúsar Kjartans­sonar, að við erum eftir atvikum ánægðir með þessa afgreiðslu fjvn. og teljum að sá rökstuðningur, sem fylgir áliti n., sé á þann veg, að hann muni verða til þess að málið verði tekið til efnislegrar afgreiðslu við gerð næstu fjárlaga.