03.05.1977
Sameinað þing: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4215 í B-deild Alþingistíðinda. (3276)

174. mál, atvinnumál öryrkja

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Ég vil aðeins fyrir hönd okkar flm. þakka hv. atvmn. fyrir skjóta og góða afgreiðslu á þessari till. og jafn­framt lýsa yfir ánægju okkar með að henni hefur tekist að umorða till. þannig að hún er bæði skýrari og betur orðuð.