04.05.1977
Efri deild: 90. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4286 í B-deild Alþingistíðinda. (3359)

Starfslok efri deildar

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég veit að ég mæli það fyrir hönd allra hv. þdm. þegar ég þakka hæstv. forseta d. fyrir árnaðaróskir í okkar garð og okkar fjölskyldna, og sömu óskir vil ég bera fram frá okkur dm. öllum og þakkir til hans fyrir sérstaklega góða og tillitssama fundarstjórn og réttláta í hvívetna. Ég veit mig enn fremur mæla fyrir hönd allra þdm. þegar ég óska honum og fjölskyldu hans alls velfarnaðar á komandi sumri og vænti þess, að við megum heilir hitta hann á þingi að hausti við byrjun þingstarfa þá. Þessu til staðfestingar vil ég biðja hv. þdm. að rísa úr sætum. — [Deildar­menn risu úr sætum.]