15.11.1976
Efri deild: 11. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í B-deild Alþingistíðinda. (393)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf frá þingflokki Sjálfstfl.:

„Samkv. beiðni Jóns G. Sólness, 2. þm. Norðurl. e., sem er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður hans, Halldór Blöndal kennari, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Halldór Blöndal hefur tekið sæti á Alþ. fyrr á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.