15.11.1976
Efri deild: 11. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (396)

49. mál, opinberar fjársafnanir

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Frv. til l. um opinberar fjársafnanir var afgr. frá þessari hv. d. í fyrra, en náði þó ekki endanlegri afgreiðslu á Alþingi. Frv. var í fyrra sent dómsmrn. til umsagnar og fulltrúar dómsmrn. komu á fund n. þeirrar sem fjallaði um frv. og breyt., smávægilegar þó, sem dómsmrn. fór fram á að gerðar yrðu á frv., voru teknar til greina af allshn. og þær samþ. hér í hv. d. á s.l. ári. Nú hefur frv. verið borið fram að nýju óbreytt frá því sem var í fyrra. Allshn. leggur til að það verði samþ. óbreytt og hafa allir hv. nm. allshn. undirritað nál. þar um.