18.11.1976
Sameinað þing: 22. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í B-deild Alþingistíðinda. (474)

48. mál, litasjónvarp

Jónas Árnason:

Herra forseti. Margur er hégóminn, sem ríður húsum hjá þessari bjóð. og mörg fordildin, sem íslendingar ana eftir öðrum þjóðum. Skelfileg er sú árátta þeirra að þurfa endilega að kalla yfir sig hverja þá plágu fordildarinnar sem þjakar aðrar þjóðir.

Sjónvarp er mikil plága með ýmsum þjóðum. Til eru lönd þar sem vísindamenn rekja marga verstu sálarkvilla fólks til þessarar plágu. Í slíkum löndum hellist sjónvarpsefni frá mörgum stöðvum dag og nótt yfir unga sem gamla. Til eru þeir sem halda því fram að sjónvarp sé líka orðið plága hér á landi. Ég tek ekki undir það.

Enda þótt sjónvarpið hafi ýmsa galla, þá hefur það marga kosti líka. Og það er a.m.k. mikil bót í máli að hér er aðeins sjónvarpað á kvöldin og ekki nema 6 kvöld í viku. Þjóðin er alveg laus við sjónvarp einn dag víkunnar og þar að auki einn mánuð á sumrin. Skynsamt fólk, sem kemur hingað frá þeim löndum þar sem sjónvarpið er orðið hvað verst plága, segir að þetta sé að sínum dómi einn helsti kosturinn við íslenskt þjóðfélag, þessi takmörkun á sjónvarpsútsendingum. Hitt er svo alveg vist, að kröfur um lengdan útsendingartíma sjónvarps munu að sjálfsögðu magnast, kröfur um fleiri stöðvar, frjálst sjónvarp, og sporgöngumenn slíkra hugsjóna mun ekki skorta skrautleg rök. Erum við íslendingar ekki vestræn lýðræðisþjóð? Hví skyldum við ekki fá að njóta sjónvarps til jafns við aðrar vestrænar lýðræðisþjóðir? Eða er nokkur þjóð raunverulega frjáls sem ekki á þess kost að glápa á sjónvarp frá morgni til kvölds? Og hégóminn mun magnast að sama skapi og fordildin sem er að verða eitt sterkasta aflið í þjóðfélagi okkar.

Ég lýsi andstöðu minni við þessa þróun. Ég lýsi andstöðu minni við þá viðleitni að gera sjónvarp á Íslandi að sams konar plágu og sjónvarpið er orðið víða um heim. Tilefnið, sem ég nota til að gefa þessa yfirlýsingu, er sú þáltill. sem hér liggur fyrir. Þessi till. gerir að vísu ekki ráð fyrir lengingu á útsendingartíma sjónvarps hér á landi, en þetta er hégómatillaga, fordildartillaga.

Ég hef átt þess kost að horfa á litasjónvarp erlendis. Venjulega hafa litirnir verið svo bjagaðir og svo afskræmdir og svo fjarri öllum eðlilegum litum að hefur verið til stórra leiðinda á að horfa — og reyndar átakanlegt stundum. Einu sinni sá ég sjálfan Bandaríkjaforseta með heiðgul eyru og grænt nef. Stundum kemst ólag á litaútsendinguna og þá kemur myndin allt í einu í svarthvítu upp á gamla móðinn og mikið verður maður þá feginn. En þetta breytir að sjálfsögðu engu um það að almenningur í þessum löndum, þar sem ég hef séð slíkt sjónvarp, sækist mjög eftir litasjónvarpi. Hinir ríku eru að sjálfsögðu ekki í neinum vandræðum með að útvega sér litasjónvarpstæki, og hinir fátæku spara við sig helstu lífsnauðsynjar til að geta eignast slík tæki, því fordildin þjakar einnig þá fátæku í þessum löndum þar sem allir eru meira og minna truflaðir af auglýsingabrambolti gróðaafla. Kapphlaupið um hégómann, stöðutáknin, — litasjónvarpið er eitt stöðutáknanna, — þetta kapphlaup er þreytt t öllum stéttum og allir eiga það sammerkt að sjá ekki eða vilja ekki sjá að margt af sjónvarpsefninu og kannske flest af því kæmi miklu betur út í svarthvítu upp á gamla móðinn. Nei, við höfum margt miklu, miklu þarfara að gera heldur en að fara að koma á hjá okkur litasjónvarpi.

Hv. flm. lætur að því liggja að tolltekjur af litasjónvarpstækjum munu tryggja endurbætur á því sjónvarpskerfi sem fyrir er í landinu. Vissulega er mikil þörf á endurbótum þar, og að sjálfsögðu er hið argasta hneyksli að á sama tíma og blöð hér á höfuðborgarsvæðinu og ábyrgir stjórnmálamenn ganga fram í því að æra upp kröfur um litasjónvarp, þá verður fólk víða úti um landsbyggðina að búa við skilyrði sem ónýta fyrir því meira og minna hverja einustu sjónvarpsdagskrá. Ég get ekki séð að sá mikli kostnaður, sá gríðarlegi kostnaður sem að sjálfsögðu hlyti að fylgja því að fleyta efni litasjónvarps út yfir alla landsbyggðina, mundi auka horfur á því að bætt yrði þjónustan við landsbyggðina á þessu sviði. Ætli landsbyggðin verði þar ekki aftarlega á merinni eins og fyrri daginn?

Hv. fim. talar um að nú sé orðið erfitt að útvega varahluti — eða varastykki, eins og við höfum jafnan sagt fyrir austan — í svarthvítu sjónvarpstækin, flest tæki landsmanna séu orðin 7–8 ára, það verði að teljast eðlilegur endingartími og eðlilegt sé að nauðsynleg endurnýjun verði samferða upphafi útsendingar í litum. Mitt sjónvarpstæki er 8 ára og er reyndar í ágætu lagi enn þá. Og ég veit ekki til þess að ég hafi undirgengist það við seljandann þegar ég keypti þetta tæki að næst þegar ég fengi mér sjónvarpstæki skyldi það endilega verða litasjónvarpstæki, hann bæri þess vegna ekki lengur neina ábyrgð á því að til væru varahlutir í gamla tækið. Ég skil ekki hvernig á því stendur að sjónvarpið stendur sjálft í því að smiða varahluti í sjónvarpstæki ef þeir eru ekki til. Það getur vel verið að það sé skylda sjónvarpsins reyndar. En ég held að það sé fyrst og fremst skylda innflytjendanna að sjá viðskiptavinunum fyrir varahlutum og mundi gilda einu þó að við íslendingar værum orðnir einir allra þjóða eftir með svarthvítt sjónvarp. Innflytjendurnir yrðu þá bara sjálfir að smíða varahluti í tækin eða sjá til þess að þeir verði smíðaðir ef þeir geta ekki keypt þá erlendis frá. Hitt gæti aftur á móti hugsast, að einhver innflytjandi sæi sér hag í því að torvelda útvegun varahluta í gömlu tækin til þess að þrýsta á fólk að kaupa ný tæki, þ.e.a.s. litasjónvarpstæki. Það væri reyndar ekkert nýtt í því þjóðfélagi frjálsrar samkeppni sem við búum í.

Ég hef leyft mér að kalla þessa tillögu fordildartillögu, hégómatillögu. Það er þó ekki vegna þess að ég telji flm. hennar einhvern sérstakan hégómamann eða fordildar, þvert á móti, enda tók hann skýrt fram til þess að fyrirbyggja allan misskilning að honum væri siður en svo neitt persónulegt kappsmál að fá litasjónvarpstæki, enda veit ég af persónulegri viðkynningu við manninn að hann er tiltölulega laus við að vera þjakaður af fordild eða hégóma. En hann er þjakaður af öðru. Hann er þjakaður af kjósendum sínum eða vissum hluta þeirra. Hann er þjakaður af vissum hluta reykvísku borgarastéttarinnar — vissum hluta, því hér á ég sannarlega ekki við alla reykvísku borgarastéttina. Stór hluti hennar er áreiðanlega sammála mér í þessu efni. Þessi hv. þm. er þjakaður af vissum hluta hennar. Hann er þjakaður af þeim hluta reykvísku borgarastéttarinnar sem hefur gert fordildina og hégómann að megininntaki lífsins, og það er þess vegna fyrst og fremst sem hann hefur flutt þessa tillögu.