18.11.1976
Sameinað þing: 22. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í B-deild Alþingistíðinda. (487)

77. mál, fasteignamiðlun ríkisins

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða nú strax, áður en þessi till. fer til n., að lýsa yfir stuðningi mínum við hana. Ég hygg að það megi treysta á stuðning annarra Alþb.-þm. í því máli, enda er þetta gamalt baráttumál okkar hér á Alþ. Við höfum margsinnis flutt till. sem ganga í þessa átt, að hamla gegn fasteignabraski og öðru slíku og þeim okurgróða sem á sér stað á þeim vettvangi. Þetta er líka okkar mál.