30.11.1976
Sameinað þing: 26. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 833 í B-deild Alþingistíðinda. (581)
239. mál, rafmagn á sveitabýli
Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):
Hæstv. forseti. Á þinginu 1974–1975 flutti ég frv. um breyt. á lögum um fjarskipti. Breytingin var þess efnis, að hæstv. símamálaráðh. var heimilað að undanþiggja aldrað fólk og öryrkja með lágmarkstekjur símagjöldum. Þessa breytingu rökstuddi ég m.a. með þeim breytingum sem orðið hafa á heimilishaldi á Íslandi undanfarna áratugi. Áður fyrr tíðkaðist það mjög að þrír ættliðir byggju saman á heimill: börn, foreldrar, afi og amma og oft ýmsir fleiri nánir ættingjar. En seinustu áratugina hafa orðið miklar breytingar á heimilisháttum íslendinga og upp hafa komið svokallaðar kjarnafjölskyldur þar sem aðeins foreldrar og börn, en aldrað fólk býr í sérstökum húsakynnum, ýmist hjón eða einstaklingar.
Eins og lífskjör aldraðs fólks eru hér á Íslandi, það hefur engar aðrar tekjur en bætur frá almannatryggingum, á þetta fólk ekki kost á að veita sér ákaflega mikið og t.a.m. á það mjög erfitt með að hafa síma, en sími er algjör nauðsyn fyrir gamalt fólk og öryrkja. Það er aðferð til þess að ná tengslum við umheiminn, við ættingja sina og kunningja, og það getur verið lífsnauðsyn ákaflega oft, því að snögg veikindi geta hitt þessa hópa þjóðfélagsþegna frekar en aðra. Þess vegna lagði ég til að þessi breyting yrði gerð. Hún var samþ. einróma í þeirri n., sem um hana fjallaði í þessari d., og fór síðan boðleið í gegnum Alþ. einróma. Þetta er hliðstæð breyting og ég hafði áður flutt till. um í sambandi við útvarpslög þegar þau voru hér síðast á dagskrá. Þá lagði ég til að aldrað fólk og öryrkjar með lágmarkstekjur yrðu undanþegin útvarpsgjöldum. Sú till. var samþ. einróma á Alþ. og þáv. menntmrh., Gylfi Þ. Gíslason, framkvæmdi hana þegar í stað. En framkvæmdin var í samræmi við almannatryggingalög eins og þau voru þá og ákaflega þröng. Framkvæmdinni var ekki breytt í samræmi við þær miklu breytingar sem urðu á almannatryggingalögum í tíð fyrrv. ríkisstj., heldur er gamla formúlan enn höfð svo að framkvæmdin er ákaflega þröng. Fyrir hv. Ed. liggur nú till. frá þm. Alþb. um að þessi heimild varðandi útvarp verði rýmkuð í samræmi við breyttar aðstæður. Það er búin að fara fram 1. umr. um það mál í Ed. og hæstv. menntmrh., Vilhjálmur Hjálmarsson, tók þessari till. á ákaflega neikvæðan hátt, og kemur mér það ákaflega mikið á óvart af gömlum kynnum mínum af þessum hæstv. ráðh.
En um símatill. er það að segja, að hæstv. símamálaráðh. hefur ekkert gert til þessa dags til þess að framkvæma einróma vilja Alþingis. Á síðasta þingi flutti varamaður minn hér á þingi, Vilborg Harðardóttir, fsp. til hæstv. ráðh. um þetta efni, hvers vegna ekki hefði verið framkvæmdur vilji Alþ. Hæstv. ráðh. svaraði engu af sinni hálfu, heldur las upp bréf frá Póst- og símamálastjóra. Meginefni þessa bréfs var það, að auðveldast væri að bæta úr þessu ástandi með því að hækka tekjur aldraðs fólks og öryrkja svo myndarlega að það gæti borgað fyrir síma til jafns við aðra þjóðfélagsþegna. Ég þekki póst- og símamálastjóra vel, við vorum saman í skóla, og ég veit að hann hefur kímnigáfu sem á snarpa brodda. Þetta svar var auðsjáanlega runnið af kímnigáfu póst- og símamálastjóra vegna þess að hann sendi bréfið á sama tíma og ríkisstj. var önnum kafin við að skerða kjör aldraðs fólks og öryrkja. En paran á hæstv. ráðh. virðist vera ansi þykk. Hann fann ekki fyrir broddinum, heldur las svarið hér upp úr ræðustóli Alþ., eins og þarna væri um raunverulegt svar að ræða.
Enn er eins ástatt og í fyrra, að hæstv. ráðh. hefur ekki framkvæmt þennan vilja Alþ., og ég verð að segja að mér kemur þetta hátterni hæstv. ráðh. mjög mikið á óvart. Við sátum saman í ríkisstj. í rúm þrjú ár, og sú ríkisstj. tók sér fyrir hendur að bæta kjör aldraðs fólks og öryrkja verulega. Það var hlutskipti mitt í þeirri ríkisstj. að leggja á ráðin um það hvernig þeim umbótum skyldi háttað. En það var verkefni hæstv. ráðh. Halldórs E. Sigurðssonar að færa til fjármuni og afla fjár til að framkvæma þessar breytingar og hann var ekki öfundsverður af því hlutskipti. Mér er ákaflega ljúft að greina frá því hér. að ég varð aldrei var við annað en góðan vilja hjá þessum hæstv. ráðh. til þess að framkvæma breytingar í bágu aldraðs fólks og öryrkja,jafnvel þó að það verkefni kynni að vera erfitt fyrir hann stundum. Hann gerði það alltaf með fúsum vilja og á mjög jákvæðan hátt. En þessi afstaða hæstv. ráðh. virðist hafa breyst eftir að hann komst í samstarf við aðra flokka. Mér hefur oft virst að forustumenn Framsfl. minni mig á skemmtilegt dýr sem ég las um í æsku minni og ber heitið kamelljón. Þetta dýr breytir um lit eftir umhverfi sínu. Mér fannst forustumenn Framsfl. vera búnir að fá á sig býsna fallegan rauðleitan blæ á meðan þeir unnu með okkur alþb.-mönnum í ríkisstj., en þessi lítur hefur því miður breyst í æði svartan lit eftir að þeir fóru í stjórnarsamvinnu við sjálfstæðismenn.
Ég vænti þess að hæstv. ráðh. svari fyrirspurn minni, og ég bíð dálítið spenntur eftir að sjá á honum litbrigðin.