30.11.1976
Sameinað þing: 26. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (590)
61. mál, tölvubanki rannsóknarlögreglunnar
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Þær upplýsingar, sem hæstv. ráðh. veitti sem svör við fsp., vorn mjög athyglisverðar og í þeim margt fréttnæmt. Ég get ekki sagt að ég hafi neitt að athuga við það viðhorf sem þar kom fram, ég vona að það verði ríkjandi. En mér finnst það vera glöggt dæmi um hversu nauðsynlegt er fyrir Alþ. að fylgjast vel með framkvæmdavaldinu, að þegar um jafnmikilvægt atriði og vernd persónufrelsis manna er að ræða, þá skuli það vera fsp. frá Alþ. sem dregur fram þessar fjölmörgu upplýsingar. Ég býst við að yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar hafi ekki haft hugmynd um að rannsóknarlögreglan væri að byrja að nota tölvur og væri fyrirhugað að halda því áfram ef reynslan yrði jákvæð, eins og búast má við.
Ég vil ítreka það, að tölvusviðið er stórhættulegt. Þetta er tækni sem veitir undraverða möguleika í sambandi við meðferð mála og upplýsingar. Auðvitað er ekkert vit í því að neita sér um að nota tölvurnar. En tölvuframleiðsla er í höndunum á þrem, fjórum heimshringum sem allir hafa gert sig seka um að misnota vald sitt og stærð og því ástæða til þess að fara að málinu með gætni. Það er ekki að ástæðulausu að nú þegar er búið að semja í flestum grannlöndum okkar ítarlega löggjöf til þess að vernda einstaklingana fyrir misnotkun á tölvunum. Dæmi eru um að tölvur hafi gert mönnum lífið svo óbærilegt að þeir flúðu úr heimabyggðum sínum. Einkafélög hafa t.d. tölvur og safna ýmsum upplýsingum um fjármál og skilvísi manna, hvort þeir séu trausts verðir. Þegar þær fá rangar upplýsingar um menn, þá virðist vera ómögulegt að leiðrétta þær. Ég vil því undirstrika alvöru þessa máls og þakka ráðh. fyrir ítarleg svör hans.