07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (671)

249. mál, rannsókn á reki gúmbjörgunarbáta

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Í till. var getið um sjóslysanefnd svokallaða. Þar eiga aðild að Slysavarnafélag Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandið, Sjómannasamband Íslands, Landhelgisgæsla Íslands og fleiri aðilar, þannig að þetta getur á engan hátt fallið eingöngu undir samgrn. Og ég undirstrika enn, að rek gúmbjörgunarbáta getur ekki talist til samgöngumála á Íslandi.