09.12.1976
Neðri deild: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1075 í B-deild Alþingistíðinda. (750)

12. mál, meðferð opinberra mála

Svava Jakobsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég skal ekki tefja þessar umr., en ég get ekki sætt mig við niðurlagsorð hv. síðasta ræðumanns. Ég held að ég hafi ekki tekið verr eftir en hann þegar hæstv. dómsmrh. talaði. Hæstv. dómsmrh. viðhafði aldrei þau orð um mína till. að hún væri á misskilningi byggð eða óeðlileg. Þvert á móti sagði hann að hún væri skiljanleg.