19.10.1976
Sameinað þing: 5. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (80)
Kosning í fastanefndir skv. 15. gr. þingskapalaga
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Ég tek eindregið undir tilmæli þau sem hæstv. forseti bar hér fram, enda eru þessar umr. mjög óvenjulegar og óeðlilegar, og satt best að segja hefði mér ekki dottið í hug að taka hér til máls ef ekki hefðu komið fram í ræðu hv. síðasta ræðumanns nokkrar rangfærslur sem ég taldi mér óhjákvæmilegt að svara hér.
Hann sagði í fyrsta lagi að þegar ákvörðun hefði verið tekin um að flytja frv. hér á Alþ., stjfrv., um að í fjvn. skyldu sitja 9–10 þm., þá hefði það verið gert að undangengnum fundi formanna þingflokkanna. Það vill svo til að ég var formaður þingflokks Alþb. á þessum tíma, og ég leyfi mér að fullyrða að þetta er misminni hv. þm. Þetta frv. var samið án vitundar okkar alþb. manna, enda kemur það heim og saman við þá staðreynd að það efnisatriði frv., að gert var ráð fyrir því að í fjvn. ættu sæti 9–11 menn, var að okkar dómi mjög fráleitt, enda hafði frv. aldrei verið undir okkur borið. Ég get aðeins bætt því við hvað þetta atriði snertir, að þegar síðan ríkisstj., sem var flytjandi þessa máls, ákvað að hyggilegra væri að 10 menn ættu sæti í fjvn. og ekki væri verið að breyta því eftir aðstæðum hverju sinni, þá var sú ákvörðun tekin án samráðs við a.m.k. mig sem formann þingflokks Alþb.
En það er reyndar fleira sem hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasyni misminnir. Hann lét þess getið áðan, að breyting hefði verið gerð á sínum tíma og fjölgað í nefndum úr 5 í 7. Ég kom í fyrsta skipti á þing 1963, og mér er það einmitt minnistætt að skömmu eftir þær kosningar, sem fram fóru að sumarlagi, ritaði hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason grein í blað sitt þar sem hann m.a. lét þess getið, að ein merkilegasta niðurstaða þessara kosninga væri sú, að nú stæðu leikar svo að minn flokkur, Alþb., gæti ekki komið að neinum manni í 5 manna n. Þegar svo þing kom saman um haustið, þá fór þetta eftir, að kosið var í 16 nefnir Alþ. án þess að Alþb. fengi þar nokkurn mann kjörinn. Það er sem sagt misminni þm. að breyting hafi verið gerð á þessu þingi til þess að Alþb. fengi menn í þessar n. Hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason stóð þá að því og sennilega stóð þá fyrir því að Alþb. var útilokað frá öllum 5 manna n. Þetta vildi ég að kæmi hér fram, vegna þess að upplýsingar hv. þm. voru mjög á annan veg.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta mál. Þetta mál er ósköp einfalt. Það hefur komið fram núna á undanförnum dögum og vikum að einn flokkurinn, SF, er í upplausu, og það liggur fyrir að hv. þm. Karvel Pálmason hyggst leita samvinnu við Alþfl. Með þessar staðreyndir í buga eru aðstæður gjörbreyttar. Ef menn telja nauðsynlegt að þm. úr öllum þingflokkum eigi fulltrúa í fjvn., þá spyr ég að því, hvort einföld sanngirni mæli þá ekki frekar með því að sá maður, sem víki fyrir fulltrúa Samtakanna í fjvn., kæmi frá Sjálfstfl., sem á 4 fulltrúa í fjvn., kæmi frá Framsfl., sem á 3 fulltrúa í fjvn., frekar en við alþb.-menn verðum að láta annan af þeim fulltrúum sem við eigum lagalegan og siðferðilegan rétt á.