13.12.1976
Neðri deild: 22. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í B-deild Alþingistíðinda. (805)

58. mál, innheimta gjalda með viðauka

Frsm. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. hefur haft til athugunar frv. til l. um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka. Þetta frv. er komið frá Ed. og er á þskj. 60. N. er sammála um að mæla með samþykkt þessa frv., en það fjallar um innheimtu tiltekinna gjalda á árinu 1977 með sömu viðaukum og á undanförnum árum.