15.12.1976
Neðri deild: 23. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (872)
66. mál, vegalög
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Á þskj. 71 er frv. til l. um breyt. á vegalögum, nr. 66 frá 14. júlí 1975, og er hér um nokkuð verulegar breytingar að ræða á þeim lögum. Meginmál þeirrar breyt., sem um ræðir í þessu frv., er flokkun veganna.
Horfið er frá því ákvæði að flokka vegi í hraðbrautir, þjóðbrautir og landsbrautir. Hins vegar er nú horfið að því að gera hringveginn að einum heildarvegi og mun heita stofnbraut og jafnframt þeir aðalvegir sem út frá hringveginum ganga, eins og til Vestfjarða og á Austfjörðum, Snæfellsnesi og víðar, þar sem nauðsyn ber til að ná til þéttbýlisstaða og þar sem um mikla umferð er að ræða. Slíkir vegir tilheyra stofnbrautum.
Í öðru lagi eru svo þjóðbrautir, en það eru nokkurn veginn svipaðir vegir og áður voru landsbrautir, en þjóðbrautirnar og hraðbrautirnar eru sameinaðar í stofnbrautunum.
Þriðja atriðið, sem er veigamikið í þessu frv., eru sýsluvegirnir. Aukin er fjárveiting til þeirra frá því sem áður hefur verið, og er þetta miðað við það að nauðsyn ber til að efla fjárveitingu til sýsluvega þar sem um er að ræða mjólkurflutninga í tankbílum heim að hverjum bæ eða svo að segja þar sem mjólkurframleiðsla er og flutningur skólabarna, daglegur akstur heim á bæina og til skólastaðanna.
Með þessum breyt., sem hér eru gerðar till. um, á að vera auðveldara að fást við vegáætlun og skiptingu þeirra fjárveitinga sem fara til vegamála og þessi mál verða framkvæmanlegri en þau hafa verið tvö síðustu árin vegna þess hvernig flokkunin var.
Þetta frv. var samið af n. sem Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri var formaður fyrir, en með honum voru í n. fyrrv. vegamálastjóri, Sigurður heitinn Jóhannsson, og alþm. Ásgeir Bjarnason, Helgi F. Seljan, Lárus Jónsson, Magnús T. Ólafsson og Sighvatur Björgvinsson. Var stefnt að því með því að taka þm. úr hverjum stjórnmálaflokki að þá næðist samstaða um þetta mál og það hefur tekist. Þetta frv. var lagt fram í hv. Ed. 10. nóv. og varð alger samstaða um þetta mál þar.
Ég vil geta þess vegna þeirra korta, sem hér eru og sýna hvert stofnbrautirnar geta náð, að þau eru ekki alveg tæmandi, eins og t.d. um veginn út á Skagaströnd, sem tilheyra mundi stofnbrautum, og Borgarfjörð eystra, sem eru staðir sem ég man eftir í bili að hefur verið spurt um hvað ætti að gera með.
Þar sem nauðsyn ber til að hraða þessu máli og afgr. það nú fyrir þinghlé vegna þess að í raun og veru er ekki hægt að ganga frá því að semja vegáætlun nema hún sé í samræmi við þessi lög og hún hefur dregist m.a. af þeim ástæðum, eða það er aðalástæðan, þá treysti ég þessari hv. d. til þess að hafa snör handtök á afgreiðslu þessa máls og afgr. það nú fyrir jólahlé. Ég mun því ekki hafa hér fleiri orð í framsögu fyrir þessu frv. Ég gerði grein fyrir því, þegar ég kynnti það í hv. Ed., og vísa til þess, auk þess sem með frv. er mjög góð grg. og hv. þm, búnir að hafa það lengi að ég veit að þeir eru búnir að kynna sér það mjög vel.
Ég legg til, hæstv. forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. samgn.