16.12.1976
Neðri deild: 24. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1324 í B-deild Alþingistíðinda. (917)

100. mál, söluskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Herra forseti. Áður en lengra er haldið í þeim umr., sem hér fara fram, vil ég láta það koma fram hér til upplýsinga, að gert er ráð fyrir því að olíustyrkurinn, sem í fjárlagafrv. er áætlaður 600 millj. kr., verði 700 millj. kr. Ég mun beita mér fyrir því við fjvn. nú við lokaafgreiðslu fjárlagafrv. að þeirri tölu verði breytt og úthlutun styrkjanna verði með sama hætti og á síðasta ári.