17.12.1976
Efri deild: 24. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (945)
127. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Ég vil taka það einu sinni enn fram, að samkv. gildandi lögum eða þeim sem gilt hafa fram til síðasta vors hefur það verið þannig, að fasteignaskatt hefur ekki mátt leggja á hús fyrr en íbúðir væru fullgerðar. Í fasteignamatslögum frá 1963 var þetta skýrt tekið fram, að fasteignamat skyldi ekki fara fram fyrr en hús væru fullgerð, og í lögunum um tekjustofna sveitarfélaga er það skýrt tekið fram, að fasteignaskatt má ekki á leggja fyrr en fasteignamat liggur fyrir. Það ætti því að vera öllum augljóst að hingað til hefur verið bannað að leggja fasteignaskatt á íbúðir í smíðum. Um leið og hið nýja fasteignamat kemur til framkvæmda nú um áramót verður breyting á þessu, þannig að fasteignamat verður framkvæmt ekki aðeins þegar íbúðir eru fullgerðar, heldur einnig þegar þær eru í smíðum. Þá er um leið orðið heimilt að leggja á fasteignaskatt. Þetta er svo augljóst að það ætti ekki að þurfa um það að ræða.
Þeir hv. þm., sem hér hafa lagt til að 1. gr. frv. yrði felld niður, hafa opnað möguleika fyrir því að þær sveitarstjórnir, sem vilja, geti lagt fasteignaskatt á íbúðir þegar þær eru fokheldar eða þegar þær eru í smiðum. Þetta liggur alveg ljóst fyrir.