17.12.1976
Efri deild: 24. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1363 í B-deild Alþingistíðinda. (958)

126. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Frsm. (Ólafur Þ. Þórðarson) :

Herra forseti. Það nál., sem hér er til umr., er frá iðnn. og fjallar um 126. mál, en efni þess er um verðjöfnunargjald af raforku. Hér er raunverulega verið að leggja það eitt til að það ástand, sem verið hefur að undanförnu með verðjöfnun,verði óbreytt, og n. hefur komist að eftirfarandi niðurstöðu:

N. hefur fjallað um frv. þetta og mælir með samþykkt þess. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Bragi Sigurjónsson og Ingi Tryggvason.“