17.12.1976
Efri deild: 24. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1363 í B-deild Alþingistíðinda. (959)

126. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Þar sem frsm. hv. iðnn. gat þess ekki að ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, þykir mér rétt að það komi fram að ég hef nú kynnt mér þau gögn, sem ekki lágu fyrir á nefndarfundinum, og sé ekki ástæðu til að gera neinar aths.