16.12.1977
Neðri deild: 34. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1396 í B-deild Alþingistíðinda. (1045)

116. mál, Lífeyrissjóður bænda

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Á s.l. vori gerðu. launþegar og atvinnurekendur með sér samkomulag um að greiða á árunum 1978 og 1979 sérstakar uppbætur á lífeyrisgreiðslur sambærilegar þeim sem greiddar hafa verið nú um tveggja ára skeið. Frv. það, sem hér er lagt fram, gerir ráð fyrir að svipuð skipan verði á greiðslum hjá Lífeyrissjóði bænda og almennt tíðkast hjá lífeyrissjóðum.

Lífeyrissjóðir þeir, er stóðu að samkomulaginu s.l. vor, deila að nokkru með sér útgjöldum vegna uppbótagreiðslna. Samstarf þetta tryggir að enginn sjóðanna verði fyrir þungum áföllum þeirra vegna. Í hæsta lagi þarf að verja 13–14% af iðgjöldum sjóða til uppbótagreiðslna.

Hjá Lífeyrissjóði bænda er þessu öðruvísi farið. Sjóðurinn á ekki aðild að neinu samstarfi við aðra lífeyrissjóði um jöfnun útgjalda og verður því sjálfur að standa undir allri uppbótagreiðslu af tekjum sínum. Áætlað er að 48% raf iðgjalda.- og framleiðslutekjum sjóðsins verði varið til lífeyrisgreiðslna árið 1978 og langmestur hluti þess fjár uppbótagreiðslur.

Fjárhagsbyrði þessi stafar að sjálfsögðu fyrst og fremst af mun óhagstæðari aldursskiptingu félaga í Lífeyrissjóði bænda en hjá öðrum sjóðum. Til að greiðslur lífeyris úr Lífeyrissjóði bænda geti orðið sambærilegar og úr öðrum sjóðum er lagt til með frv. þessu, að tekjur sjóðsins verði nokkuð auknar. Til þessa hafa laun þau, sem iðgjald hefur verið reiknað af, miðast við kaupgjald hausts á undan gjaldárinu að viðbættu 10% álagi vegna kaupgjaldsbreytinga. Þessi skipan hefur á undanförnum árum verið í litlu samræmi við raunverulegar breytingar á launum. Hér er því lagt til að álag þetta verði 20% í staðinn fyrir 10%. Jafnframt er lagt til að iðgjöld verði aldrei miðuð við lægri fjárhæð en 4/5 af heildarverðmæti bú vöru í stað 3/4 hluta nú. Talið er að breytingar þessar muni auka ráðstöfunarfé sjóðsins árið 1978 um rúmlega 40 millj. frá því er það ella verður.

Um einstakar greinar frv. leyfi ég mér að vísa til athugasemda sem eru prentaðar með frv. Frv. þetta er samið í náinni samvinnu við stjórn Lífeyrissjóðs bænda. Hér er á ferðinni sanngirnismál sem ég vænti að fái góðar undirtektir og njóti skjótrar afgreiðslu í hv. þd. og vonast til að það geti orðið að lögum áður en hv. þm. fara í jólaleyfi.

Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að málinu verði að lokinni þessari umr, vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.