16.12.1977
Neðri deild: 34. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1396 í B-deild Alþingistíðinda. (1048)

127. mál, innheimta gjalda með viðauka

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Með frv. því, sem hér liggur fyrir, er lagt til að ríkisstj. verði veitt tímabundin heimild til að innheimta ýmis gjöld, þ.e.a.s. fyrst og fremst nokkur stimpilgjöld, með viðauka. Á undanförnum árum hefur slíkt frv. verið flutt árlega og heimildar Alþ. verði aflað til að gjöld þessi væru innheimt með óbreyttum viðauka, þ.e.a.s. 140%.

Tekjur ríkissjóðs vegna innheimtu stimpilgjalda, þinglýsinga og aukatekna voru áætlaðar 1 milljarður 984 millj. kr. fyrir fjárlagaárið 1977. Samkv. frv. til fjárlaga fyrir árið 1978 eru tekjur vegna sömu gjalda áætlaðar 2 milljarðar 346 millj. kr., og er þá miðað við að áfram verði veitt heimild fyrir innheimtu gjalda með viðauka.

Ég tel rétt að skýra frá því, að nú stendur yfir heildarendurskoðun laga um stimpilgjöld. Fjh: og viðskn. Alþ. hefur verið gerð grein fyrir því, hvernig að því starfi hefur verið staðið og hvernig það stendur. Væntanlega verður nýtt frv. til laga um stimpilgjöld lagt fram þegar að loknu jólaleyfi þm. Hér er um yfirgripsmikið lagafrv. að ræða og því ekki talið fært að leggja það fram nú fyrir jólin á mesta annatíma Alþ. Er því enn einu sinni lagt til, að ríkisstj. verði veitt hin hefðbundna heimild til að innheimta þessi tilteknu gjöld með viðauka næsta fjárlagaár.

Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.