16.12.1977
Efri deild: 33. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1403 í B-deild Alþingistíðinda. (1056)
128. mál, tímabundið vörugjald
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er lagt fram, er í nánum tengslum við fjárlagafrv. Í frv. til fjárl. eru áætlaðar tekjur af vörugjaldi árið 1978 7 milljarðar kr.
Lög um sérstakt tímabundið vörugjald voru upphaflega sett um mitt ár 1975 og hefur þeim, eins og nafnið ber með sér, ætið verið ætlað að gilda í takmarkaðan tíma. Í frv. þessu er enn sá kostur valinn að ætla nýjum lögum takmarkaðan gildistíma. Ég vil vekja á því athygli, að innan skamms verður lagt fyrir þingið frv. um breyting á lögum um tollskrá, og verði það samþykkt, mun þurfa að endurskoða þau tollskrárnúmer sem upp eru talin í núgildandi vörugjaldslögum. Fjárhagsmál tengd frv. þessu hafa fléttast inn í almennar umr. um fjárl. og afgreiðslu þeirra. Ég sé því ekki ástæðu til að fara nánar út í þau mál hér.
Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr, vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.