19.12.1977
Efri deild: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1509 í B-deild Alþingistíðinda. (1194)

130. mál, skyldusparnaður og ráðstafanir í ríkisfjármálum

Jón Helgason:

Herra forseti. Eins og fram kom í máli hæstv. forsrh. áðan eru vandamál landbúnaðarins eins og annarra atvinnuvega í athugun hjá ríkisstj. og verða það á næstu vikum og þá þetta atriði eins og önnur. Þar sem ég vænti þess, að það leiði til jákvæðs árangurs í þessu máli, þá segi ég nei við þessari till. nú.