19.12.1977
Efri deild: 45. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1521 í B-deild Alþingistíðinda. (1219)

94. mál, læknalög

Frsm. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Heilbr.- og trn, hefur fjallað um þetta frv. til l. um breyt. á l. nr. 108 frá 1973, sbr. læknalög, nr. 80/1969. Hefur n, rætt málið á fjórum fundum og átt viðræður við hlutaðeigandi aðila. Að loknum þessum umr. mælir n. með samþykkt á frv. óbreyttu eins og það kom frá hv. Nd. Formaður n., Oddur Ólafsson, skrifaði undir nál. með fyrirvara.