20.12.1977
Sameinað þing: 34. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1595 í B-deild Alþingistíðinda. (1311)
123. mál, framkvæmdir og þjónusta í þágu bandaríska hersins á Íslandi
Utanrrh. (Einar Ágústsson):
Herra forseti, Það eru, eins og hér hefur komið fram, mörg atriði í þessari fsp. sem ég er mjög fús til að svara. Hins vegar eru í henni önnur atriði, sem ég tel að ekki sé unnt fyrir Alþ. að leyfa, til viðbótar þeim, sem nefnd hafa verið. Vil ég minnast á það, að hér er beðið um upplýsingar um launatekjur nokkurra þúsunda manna hvers út af fyrir sig. Ég tel ekki að Alþ. eigi að fara inn á þessa braut og segi þess vegna nei.